Könnun

Skemmtilegasta "breska" íţróttin?

Auglýsing

Leit

Innskráningar kubbur

Er ţađ nú nafn!

05. október 2011 klukkan 00:15
Átta þeir sig ekki á því hversu asnalegt þetta er:

Meiri dónaskapurinn 

Ouch!

Þetta eru nú meiru dónarnir hérna í Edinborg. Surprised Femínistar eru sko ekki á leið til Edinborgar, þeir myndu sjá typpi útum allt. Ef maður pælir samt betur í því, ætli Cockburn West End Delicatessen sé í eigu öfga femínista? Þessa götu er einnig að finna í Edinborg:

Cockblock Street 

Greinilegt að einhver með þetta sársaukafulla eftirnafn sé alveg í skýjunum með þetta og treður þessu útum allt. Einnig er hægt að skrá sig í The Royal Dick School of Veterinary Studies...ég lýg þessu ekki: http://www.ed.ac.uk/schools-departments/vet  

ALDREI nokkurntíman myndu svona nafnagiftir ganga eftir heima án þess að skapa óendanlegt einelti fyrir viðkomandi. Ég er pottþéttur að ég væri með veikari sál í dag hefði ég verið skírður:

  • Reður Már Skúlason
  • Ragnar Már Ballarbruni
  • Ragnar Már Skúlason kallaður Göndull líkt og Richard er kallaður Dick.

Fyrir þessa Englendinga og Kana virðist þetta vera alveg eðlilegt en ég bara get ekki séð þetta fyrir mér ganga eftir heima, fólk er samt farið að senda Mannanafnanefnd ansi mikið rugl.

Héðan í frá mun öllum pistlum fylgja ein Family Guy klippa, engum á eftir að finnast þessi leiðinleg Cool 

 


Kveðja frá Edinboring,
Ljótur Tilli Skaufason

Ragnar Már Skúlason
2 athugasemdir

Rax bloggiđ snýr aftur!

03. október 2011 klukkan 21:56
Þá er komið að því...comeback!


Síðasta færsla hérna inni kom við lok dvalarinnar í San Diego og núna er maður fluttur til Edinborgar og því kjörið tækifæri að skrifa nokkrar færslur og deila skemmtilegu efni sama hvort það sé löglegt eða ólöglegt. Svona bara til að vara lesendur við þá mun ég vera mjög neikvæður í flestum pistlunum, vona að skemmtanagildið fyrir lesendur verði meira. Ég vil því alls ekki að þið farið að vorkenna mér, senda mér samúðarkveðjur í kommentum, né senda mér ullarnærföt í pósti. Einnig vil ég ekki að þeir sem eru hálfir Skotar taki þetta inná sig og eyði mér útaf Facebook eða verði með óspektir í kommentunum...þið vitið hverjir þið eruð.


Edinborg er alveg æðisleg, þökk sé Evrópusambandinu. Jafnvel þótt ég sé staddur í Evrópusambandslandi þá verð ég nú að segja að sólin skín ekki mikið oftar hér, rokið er ekki minna, færri hafa efni á að eiga og reka bíl, menntastigið er lægra, matur er álíka dýr og Ritzenhoff er dýrar hér þegar maður ber þessa hluti saman við heimalandið. Þið ykkar sem dettur í hug að hugsa "já af því að pundið er svo dýrt" HÆTTIÐ ÞVÍ STRAX. Pundið er sko langt frá því að vera dýrt þrátt fyrir að það séu 185 krónur í einu pundi, fjöldi króna hefur ekkert að gera með hvort gjaldmiðill er dýr eða ekki. Pundið hefur veikst gagnvart öllum myntum hins vestræna heims (nema krónunni) á síðustu 8 árum.


Byrja rólega í tuðinu en ætla að leyfa ykkur að njóta klippu sem sýnir ykkur í hvað stefnir hjá mér eftir eitt ár í þessu sérstaka landi:


 

Cheers!

Ragnar Már

Ragnar Már Skúlason
4 athugasemdir

Hrekkir sem náđust á filmu

07. maí 2009 klukkan 06:34

Að hrekkja einhvern getur verið gott fun. Að vera hrekktur er ekki alltaf mjög skemmtilegt. Tongue out Sumir hrekkir geta samt farið yfir strikið, þá einungis fyrir fórnarlamb þess hrekks. Hrekkirnir hér að neðan voru vel skipulagðir, teknir upp á filmu og eru brútal fyndnir...ég sárvorkenni samt hinum hrekktu. Foot in mouth

Hugsunin á bakvið þenna hrekk er mjög saklaus, en reynist svo verða ótrúlega brútal. Hrekkjalómarnir gerður sér ekki alveg grein fyrir afleiðingum sem hrekkurinn hefur á fórnarlambið:




Hvað ætli hafi farið í gegnum hugan á gaurnum á meðan hann var að fagna? Losa sig við allar skuldir, nýr bíll, nýtt hús o.s.frv.


Næsti hrekkur er ótrúlega vel gerður enda gerður af crew-inu í Scare Tactics, sem er þáttur sem sérhæfir sig í því að hræða líftóruna úr fólki og taka það ALLT upp á filmu:


Awsome Prank: Satan's Baby !!!! - Watch more Funny Videos


Jæja, nóg af hrekkjum í bili og yfir í eitthvað léttara. Muniði eftir gaurunum í The Whitest Kids U Know? Ungir gaurar sem semja og taka upp skétsa, sem skilaði þeim bíómynd fyrir Fox. The gRapist:




Takk fyrir bless,
RAX


Ragnar Már Skúlason
2 athugasemdir

Mađur fćr aldrei nóg...

04. maí 2009 klukkan 07:59

...af þeirri snilli sem Family Guy færir okkur áhorfendum hvað eftir annað.





Smá Hammer-time fyrir forseta Petoria:




"Lána-Hákarlinn" Stewie Griffin:





Smá NBA-talk. Ég er einn af mörgum NBA aðdáendum sem finnst gaman að bera Austrið saman við Vestrið. Fólk virðist vera með mismunandi skoðanir á því hvor hlið deildarinnar sé betri í ár. Af fjórum sigursælustu liðum í deildinni voru þrjú úr Austrinu. Er rétt að meta þessa baráttu milli Austurs og Vesturs eftir árangri? Ekki aldeilis, því lið Austan megin keppa oftar við lið í sínum landshluta o.s.frv. En hvað væri besta leiðin til að bera liðin saman?

Eins og styrkleikinn á liðunum er í dag þá fyndist mér sanngjarnast að lið 1-4 í Austurdeildinni kepptu við lið 5-8 í Vesturdeildinni og öfugt. Úrslitakeppnin hefði því litið svona út:

Cleveland Cavs - Utah Jazz
Boston Celtics - New Orleans Hornets
Orlando Magic - Dallas Mavericks
Atlanta Hawks - Houston Rockets
Portland Trail Blazers - Miami Heat
San Antonio Spurs - Chicago Bulls
Denver Nuggets - Philadelphia 76ers
Los Angeles Lakers - Detroit Pistons

Af þessu að dæma þá mundi ég segja að 6 af 8 liðum úr Vestrinu kæmust í næstu umferð. Hversu mörg lið úr Vestrinu heldur þú að kæmust áfram úr þessum átta viðureignum?





Hasta la vista,
RAX

Ragnar Már Skúlason
1 athugasemd

Westminster Kennel Club Dog Show

29. apríl 2009 klukkan 06:09

Þetta er sennilega þekktasta hundasýning (keppni) í öllum heiminum. Hún á sér stað á hverju ári síðan 1877 og fer fram í Madison Square Garden í New York. Það er tvennt sem hefur vakið athygli mína á þessari sýningu.

Í fyrsta lagi, þá er alveg ótrúlegt hversu snobbað lið mætir með hundana sína á þessa virtu sýningu. Þetta sést best á Triumph The Insult Comic Dog DVD disknum sem ég á, en því miður þá er þessa klippu HVERGI að finna. Frown Triumph lét sjá sig þarna árið 2000 og var rekinn út með miklum látum. Á þessari klippu mætir hann ári seinna en fær ekkert "action" líkt og árið áður:




Í öðru lagi, og þetta er fyndni hlutinn, er vaxtalagið á hundaeigendum og hlaupastíllinn sem þeir þurfa að sýna fyrir framan fullan sal af áhorfendum og heilan hellingur af sjónvarpsmyndavélum. CNBC var með einhvern sér þátt í febrúar um Westminster hundasýninguna og það mikla peningaflóð sem þessi keppni skilar borginni. En eftir að horfa á brot af þessum þætti þá gat ég ekki annað en hlegið, því þarna eru sumir hundaeigendur að fá sína einu hreyfingu yfir allt árið! Laughing Allir þurfa þeir að hlaupa með hundinn sinn um salinn og hlaupastíllinn er ansi skrautlegur oft á tíðum:



Merkilegur hópur af fólki sem kemur þarna saman Money mouth


En yfir í aðra stærri og merkilegri hluti...San Antonio Spurs eru komnir í sumarfrí! Þeir voru nú ekki langlífir þetta árið þrátt fyrir að enda í þriðja sæti Vesturstrandarmeginn í NBA deildinni. Þvílíkt blow-out að tapa 1-4 fyrir liðinu í sjötta sæti, Dallas Mavericks. Í tilefni af þessum viðburði þá verður maður að senda þá í "veiðiferð". Hérna kemur gott "gone fishin" myndband frá því í fyrra þegar Lakers sendu þá í fríið:



Kem vonandi með eitthvað djúsí á mánudaginn Tongue out


Tweed tweed,
RAX

Ragnar Már Skúlason
3 athugasemdir

Lakers komnir áfram eftir 4-1 sigur á Utah Jazz

28. apríl 2009 klukkan 08:13

Hvort fáum við Houston Rockets eða Portland Trail Blazers?




Efnismeira blogg á morgun um Westminster keppnina og hundaeigendur Wink

Áfram Lakers,
RAX

 

Ragnar Már Skúlason
Engin athugasemd

NBA Playoffs...YEAH BABY!!!

24. apríl 2009 klukkan 06:47

Cool

Úrslitakeppnin er loksins byrjuð í NBA deildinni. Þetta er einn besti viðburður á hverju ári í íþróttum og án efa minn uppáhaldstími þegar kemur að því að fylgjast með íþróttum...vertíð!

Mér til mikillar lukkur þá er ég staddur í USA og get horft á tvo leiki beint í sjónvarpinu á virkum dögum og 3-4 leiki á laugardögum og sunnudögum, allavega fyrstu umferðina. Einnig er maður staddur í hentugasta tímabeltinu af öllum til að horfa á þessa leiki. Leikir sem eru á Austurströndinni byrja kl: 16 - 17 hjá mér og Vesturstrandarleikirnir byrja milli 18:30 og 19:30.

Til þess að skemmta sér enn betur í þessari körfuboltaveislu þá vil ég benda lesendum á tvær síður sem innihalda snilldar efni:

Barkley Zone - Á miðri síðunni er flipi sem kallast Barkley Zone en þær lætur Barkley sínar fyndnu skoðanir í ljós. Einnig tekur hann viðtöl við "gamlar" NBA stjörnur, nú þegar komin viðtöl við Penny Hardaway og Kevin Johnson.

TNT Overtime - Margverðlaunaður Emmy vinningshafi þessi íþróttaþáttur í umsjón Ernie Johnson, Kenny "The Jet" Smith og Charles Barkley. Þessir gaurar eru algjörir snillingar. Það er einnig hægt að komast í þessa klippur með því að smella á TNT OT flipann sem er við hliðina á Barkley Zone.


VEISLA!!!


Enda þetta blogg á einu merkilega góðu lagi sem maður heyrir alltof sjaldan:




Nigga please, Wink
RAX

Ragnar Már Skúlason
3 athugasemdir

Fyrirbćri á YouTube #8

20. apríl 2009 klukkan 05:27
The Kid From Brooklyn

Hann er sko enginn krakki þessi. Röflari á sextugsaldri frá New Jersey sem lætur sínar skoðanir í ljós og hikar ekki við það að nota ljótt orðbragð. Yell



Það gengur ekki vel hjá honum þessa dagana skv. heimasíðu hans. Kreppan teygir sig víða og nær víst líka til YouTube fyrirbæra. Í stað þess að missa sig á einhverri lame bloggsíðu eins og þessari þá gerir hann það á YouTube:




Jæja þá er YouTube fyrirbæralistinn á enda og hvað mun taka við? Kannski tala um íslenska pólitík...það er nú eitt stórt fyrirbæri fyrir sig en Guð hjálpi mér frá því! Laughing

Ísland á eftir að bíða afhroð næstu helgi...  Ráðist verður að sparnaði eldra fólksins og þeirra sem skulda ekkert í húsinu sínu. Cry

Kostar að vera grænn,
RAX

Ragnar Már Skúlason
3 athugasemdir

Fyrirbćri á YouTube #7

06. apríl 2009 klukkan 07:09

Denny Blaze


Sviðsnafn þessa kappa er The Average Homeboy, nafnið á eina laginu sem hann er þekktur fyrir. Seint á áttunda áratuginum þá gekk Denny Blaze á milli útgáfufyrirtækja með upptöku af laginu sínu The Average Homeboy. Ekkert af fyrirtækjunum leist vel á þennan furðufugl og að heyra "sorry dude, not gonna happen" dró algjörlega úr löngun hans að verða rappari og snéri hann sér að öðrum hlutum. Það var síðan ekki fyrr en 17 árum seinna að einhver hjá MTV fann þessa upptöku ofan í einhverjum kassa sem var í geymslu og ákvað að setja myndbandið á YouTube:



Fyrstu tvær vikurnar á YouTube voru alls ekki slæmir því alls 1 milljón manns horfðu á þetta video og þá var ekki aftur snúið fyrir Denny Blazin Hazen (eða jú það var aftur snúið!). Denny var kominn aftur í sviðljósið og nú fullur sjálfstrausts. Eftir endurlífgun rappferilsins hefur hann gefið út tvo diska og sér um að skemmta fólki útum allt land.

Síðasta fyrirbæri af undrunum átta á YouTube kemur í ljós á fimmtudaginn...

Middle class guy trying to express himself,
RAX

Ragnar Már Skúlason
4 athugasemdir

Fyrirbćri á YouTube #6

03. apríl 2009 klukkan 08:12

Lee Paige


Þann 9. apríl 2004 var Lee Paige staddur í Orlando, Flórída. Þar var hann að halda kynningu fyrir börn og fullorðna, um eiturlyf og byssuöryggi, á vegum eiturlyfjadeildar lögreglunnar í USA (DEA). Þessi kynning gerði Lee Paige að heimsfrægum forvarnarstarfsmanni:




Nokkrar milljónir hafa séð þetta myndband síðan því var lekið á netið og er ferill Lee Paige og mannorð hans algjörlega í rúst. Cry Vinnan hans fyrir DEA fólst í því að taka þátt í "undercover" verkefnum og sinna forvarnarstarfi með því að halda fyrirlestra - honum tókst heldur betur að þurrka út báða möguleika með þessari frammistöðu. Laughing Greyið maðurinn...

Næsta fyrirbæri verður afhjúpað á mánudaginn...*hint* *hint* forveri Eminem.


The only one professional enough to write this blog,
RAX


P.S. Þessi mynd er pottþétt á listanum yfir bíóferðir í sumar:

 

Eruði með??? Cool

Ragnar Már Skúlason
1 athugasemd